Þjóðskjalasafn Íslands
Hvers leitar þú? Heim


Skjalavarsla
Skjalaskrár
Heimildagrunnar
Sýningar - Fræðsla
Afhending skjala
Þjónusta

Um Þjóðskjalasafn
English Dansk

Kynningarfundur um rafræn opinber gögn og skil á þeim
Þjóðskjalasafn Íslands boðar til kynningarfundar fyrir skjalaverði í stofnunum á reglum safnsins um rafræn opinber gögn og skil á þeim sem tóku gildi 1. ágúst sl. Reglurnar eru þrenns konar:
  • Reglur um tilkynningu og samþykkt rafrænna skjalavörslukerfa afhendingarskyldra aðila til Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Reglur um tilkynningu rafrænna skráa og gagnagrunna afhendingarskyldra aðila til Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Reglur um afhendingu á vörsluútgáfum gagna úr rafrænum gagnakerfum afhendingarskyldra aðila til Þjóðskjalasafns Íslands.
Umsjón með kynningu hafa Júlía Pálmadóttir Sighvats og Njörður Sigurðsson frá Þjóðskjalasafni Íslands.

Kynningarfundurinn verður haldinn miðvikudaginn 30. september kl. 08:30-10:00 í fyrirlestrarsal Þjóðarbókhlöðu. Boðið verður upp á kaffi og rúnstykki.