Þjóðskjalasafn Íslands
Hvers leitar þú? Heim


Skjalavarsla
Skjalaskrár
Heimildagrunnar
Sýningar - Fræðsla
Afhending skjala
Þjónusta

Um Þjóðskjalasafn
English Dansk

Námskeið Þjóðskjalasafns Íslands 2010-2011

Þjóðskjalasafn Íslands stendur fyrir reglulegum námskeiðum um skjalavörslu hjá opinberum aðilum, annars vegar fyrir stofnanir og embætti ríkisins og hins vegar fyrir sveitarfélög og stofnanir þeirra sem ekki eru aðilar að héraðsskjalasafni. Sveitarfélög sem eru aðilar að héraðsskjalasafni skulu leita eftir upplýsingum um námskeið hjá viðkomandi héraðsskjalasafni. Auk þess býður Þjóðskjalasafn einkafyrirtækjum upp á námskeið um skjalavörslu.
Hér fyrir neðan er yfirlit yfir námskeið Þjóðskjalasafns Íslands veturinn 2010-2011. Nánari upplýsingar um námskeið, skráningu og námskeiðsgjald fæst með því að smella á tengla fyrir neðan námskeiðslýsingu.

Almennt námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum - 9.-10. september 2010
Á námskeiðinu er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu opinberra stofnana. Sama námskeið verður einnig í boði 20.-21.janúar 2011 og 13.-14. apríl 2011.
Nánari upplýsingar.

Almennt námskeið um skjalavörslu sveitarfélaga fyrir sveitarfélög sem heyra undir ÞÍ - 14.-15. október 2010
Á námskeiðinu er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu sveitarfélaga og stofnana þeirra.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um gerð málalykla - 28. október 2010
Á námskeiðinu er farið yfir reglur um málalykla afhendingarskyldra aðila, gerð málalykla og unnin raunhæf verkefni. Sama námskeið verður einnig í boði 3. mars 2011.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um tilkynningu rafrænna gagnakerfa - 11. nóvember 2010
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig skuli tilkynna rafræn gagnakerfi til Þjóðskjalasafns Íslands fyrir þá aðila sem ætla að varðveita gögn sín á rafrænu formi. Farið er yfir ferlið við tilkynningu rafrænna kerfi, eyðublöð sem skal og nota og þau fylgiskjöl sem þurfa að fylgja tilkynningunum. Sama námskeið verður einnig í boði 17. mars 2011.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um frágang og skráningu pappírsskjalasafna - 25. nóvember 2010
Á námskeiðinu verður farið yfir reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang og skráningu pappírsskjalasafna og leiðbeiningar. Leiðbeint um gerð geymsluskrár og umbúðir sem skal nota undir skjöl. Sama námskeið verður einnig í boði 31. mars 2011.
Nánari upplýsingar.

Almennt námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum - 20.-21. janúar 2011
Á námskeiðinu er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu opinberra stofnana. Sama námskeið verður einnig í boði 9.-10. september 2010 og 13.-14. apríl 2011.
Nánari upplýsingar.

Kynning og samráðsfundur fyrir hugbúnaðarframleiðendur og sérfræðinga í tölvukerfum um varðveislu rafrænna gagna - 17. febrúar 2011
Kynntar verða reglur Þjóðskjalasafns Íslands um rafræn opinber gögn og skil á þeim og í kjölfarið verða opnar umræður um varðveislu rafrænna gagna og gerð vörsluútgáfna.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um gerð málalykla - 3. mars 2011
Á námskeiðinu er farið yfir reglur um málalykla afhendingarskyldra aðila, gerð málalykla og unnin raunhæf verkefni. Sama námskeið verður einnig í boði 28. október 2010.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um tilkynningu rafrænna gagnakerfa - 17. mars 2011
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig skuli tilkynna rafræn gagnakerfi til Þjóðskjalasafns Íslands fyrir þá aðila sem ætla að varðveita gögn sín á rafrænu formi. Farið er yfir ferlið við tilkynningu rafrænna kerfi, eyðublöð sem skal og nota og þau fylgiskjöl sem þurfa að fylgja tilkynningunum. Sama námskeið verður einnig í boði 11. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um frágang og skráningu pappírsskjalasafna - 31. mars 2011
Á námskeiðinu verður farið yfir reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang og skráningu pappírsskjalasafna og leiðbeiningar. Leiðbeint um gerð geymsluskrár og umbúðir sem skal nota undir skjöl. Sama námskeið verður einnig í boði 23. nóvember 2010.
Nánari upplýsingar.

Almennt námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum - 14.-15. apríl 2011
Á námskeiðinu er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu opinberra stofnana. Sama námskeið verður einnig í boði 9.-10. september 2010 og 20.-21. janúar 2011.
Nánari upplýsingar.

Námskeið um skjalavörslu fyrir einkafyrirtæki - 17. maí 2011
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu grunnþætti sem mikilvægir eru í skjalavörslu, þ.e. skjalavistunaráætlun, grisjun, málalykil og málaskrá, frágang og skráningu pappírsskjalasafna, umbúðir utan um skjöl og reglur um rafræn opinber gögn og skil á þeim.
Nánari upplýsingar.