Stafrænar heimildir
Eitt af lögbundnum hlutverkum Þjóðskjalasafna Íslands er að „efla þekkingu á þjóðarsögunni og stuðla að rannsóknum á henni“. Til að auðvelda landsmönnum öllum aðgang að heimildum í vörslu safnsins birtir Þjóðskjalasafn hluta þeirra á vef safnsins undir samheitinu „Stafrænar heimildir“. Þar á meðal er manntalsvefur með ellefu manntölum, jarðavefur um tilteknar heimildir tengdum rannsóknum vegna þjóðlendumála, dómabókagrunnur sem auðveldar til muna leit að upplýsingum í dómabókum og svo má áfram telja.
