Námskeið
Þjóðskjalasafn Íslands stendur fyrir reglulegum námskeiðum um skjalavörslu hjá opinberum aðilum, annars vegar fyrir stofnanir og embætti ríkisins og hins vegar fyrir sveitarfélög og stofnanir þeirra sem ekki eru aðilar að héraðsskjalasafni.
Helstu nýmæli eru þau að haustið 2012 verða sérstök námskeið fyrir ríkisstofnanir sem eru afhendingarskyldar til Þjóðskjalasafns Íslands úti á landi og verða námskeiðin haldin á Akureyri, Egilstöðum og Ísafirði. Örlitlar breytingar hafa verið gerðar á námskeiði um tilkynningu rafrænna gagnakerfa, sem verður nú haldið samfleytt frá morgni fram að hádegi í stað hlés, og námskeið um frágang og skráningu pappírsskjalasafna hefur verið lengt lítillega. Þá hefur kennslu í grisjun verið bætt við námskeið um gerð skjalavistunaráætlunar. Almennt námskeið um skjalavörslu verður haldið á einum degi eins og hátturinn var á síðasta ári en verður eingöngu haldið einu sinni á komandi vetri. Námskeið um málalykla er haldið í óbreyttri mynd.
Alls verða kennd 12 námskeið veturinn 2012-2013 og er hér fyrir neðan að finna nánari upplýsingar um námskeiðin, skráningu og námskeiðsgjald.
Almenn námskeið um skjalavörslu í opinberum stofnunum
Á námskeiðunum er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu opinberra stofnana.
Sértæk námskeið um helstu þætti í skjalavörslu
Á námskeiðunum er farið yfir reglur Þjóðskjalasafns og fjallað með raunhæfum dæmum um gerð málalykla, frágang og skráningu pappírsskjalasafna og um átak í skjalavörslu og gerð skjalavistunaráætlunar.
Námskeið um skjalavörslu fyrir ríkisstofnanir á Vestfjörðum, Norðurlandi og Austfjörðum
Á námskeiðunum er farið almennt yfir helstu lög og reglur sem gilda um skjalavörslu opinberra aðila, hverjir eru afhendingarskyldir aðilar og kröfur og fyrirmæli Þjóðskjalasafns til skjalavörslu sveitarfélaga og stofnana þeirra. Sérstaklega verður farið yfir frágang og skráningu skjalasafna og gerð málalykils.
Námskeið um rafræna skjalavörslu
Á námskeiðunum er annars vegar farið yfir tilkynningu og rafrænum gagnakerfum til Þjóðskjalasafns Íslands og hins vegar um gerð vörsluútgáfu rafrænna gagna.
